Hvernig birtist fyrirtækið mitt í svörum gervigreindar?

Birgir

16 July 2026

Fyrirtækið þitt birtist í svörum gervigreindar þegar líkönin finna skýrt og trúverðugt efni um það: á vefnum þínum, í umfjöllun annarra og í gögnum sem þau treysta. Þú hefur meiri stjórn á þessu en þú heldur. Hér er hvernig þú mælir stöðuna í dag og bætir hana skref fyrir skref.

Byrjaðu á að mæla stöðuna

Opnaðu ChatGPT, Claude, Gemini og Perplexity og spurðu eins og viðskiptavinur myndi spyrja. Ekki spyrja um fyrirtækið þitt með nafni heldur um þjónustuna: „hver er besti kosturinn í X á Íslandi?", „hvað kostar Y?", „hvern ættirðu að tala við um Z?". Skráðu hjá þér hver er nefndur og hver ekki.

Gerðu þetta mánaðarlega. Svörin breytast þegar líkönin uppfærast og þegar nýtt efni birtist á netinu, og eina leiðin til að vita hvort vinnan skilar sér er að mæla reglulega frá sama sjónarhorni.

Svona velja líkönin hverja þau nefna

Gervigreind sækir upplýsingar úr tveimur áttum: þjálfunargögnum líkansins og leit í rauntíma. Í báðum tilfellum vinnur hún úr sama hráefni og Google hefur alltaf gert, vefsíðum, fjölmiðlaumfjöllun, skrám og gagnagrunnum. Líkönin vega efni eftir trúverðugleika: umfjöllun í fjölmiðlum og á vefjum sem margir vísa í telur meira en fullyrðingar fyrirtækis um sjálft sig.

Þess vegna dugar ekki að vefurinn þinn sé fallegur. Hann þarf að segja hlutina skýrt og umheimurinn þarf að taka undir.

Efnið á þínum eigin vef

Skrifaðu greinar sem svara spurningum viðskiptavina orðrétt, með spurninguna sem fyrirsögn og svarið í fyrstu setningunum. Þannig er þessi grein einmitt byggð upp. Líkön grípa beinar staðhæfingar og hnitmiðuð svör; þau grípa síður loðið markaðsmál.

Passaðu líka grunnupplýsingarnar. Hvað gerir fyrirtækið, fyrir hverja, hvar og síðan hvenær á að standa skýrum orðum á vefnum, og sömu staðreyndir eiga að vera samhljóða á öllum síðum. FAQ-kaflar með stuttum svörum virka sérstaklega vel, því þeir spegla nákvæmlega það form sem gervigreindin skilar sjálf.

Umtal annarra vegur þyngst

Það sem aðrir segja um þig telur meira en það sem þú segir sjálfur. Fjölmiðlaumfjöllun, viðurkenningar á borð við Íslensku vefverðlaunin, aðild að fagfélögum eins og SVEF, viðskiptasögur hjá samstarfsaðilum og umsagnir viðskiptavina: allt eru þetta merki sem líkönin nota til að meta hvort fyrirtæki sé raunverulegt og marktækt.

Hjá Flóru sáum við þetta sjálf. Eftir SVEF-verðlaunin fyrir besta ferðaþjónustuvefinn og vottunina sem Framer Partner fórum við að birtast í svörum sem við höfðum ekki sést í áður. Verðlaunin sjálf voru ekki markmiðið, en umtalið sem fylgdi þeim las gervigreindin.

Tæknilegu atriðin

Vefurinn þarf að vera læsilegur fyrir vélar, ekki bara fólk. Það þýðir skýra fyrirsagnaskipan (ein H1, rökrétt H2 og H3), hraða síðu, veftré (sitemap) og skipulögð gögn (schema.org) sem merkja fyrirtækið, þjónustuna og algengar spurningar. Athugaðu líka robots-stillingarnar: sumir vefir loka óvart á skriðla gervigreindarfyrirtækja og hverfa þar með úr svörunum.

Ef vefurinn þinn er gamall eða hægur borgar sig að laga það fyrst. Öll efnisvinna á veikum grunni skilar minna en hún ætti að gera.

Hvað tekur þetta langan tíma?

Nokkrar vikur upp í nokkra mánuði. Gervigreind sem leitar í rauntíma getur fundið nýja grein innan fárra daga, en breiddin og traustið sem færir þig inn í svörin án leitar byggist upp hægar. Reglusemin vinnur: eitt vandað svar á viku í heilt ár breytir stöðunni meira en stór átaksverkefni sem fjarar út.

Algengar spurningar

Þarf ég að borga fyrir að birtast í svörum gervigreindar?

Nei. Í dag er engin leið að kaupa sér pláss í sjálfum svörunum. Sýnileikinn byggist á efni og trúverðugleika, ekki auglýsingafé. Það gerir þetta að jöfnum leikvelli þar sem lítil fyrirtæki geta unnið stór.

Get ég séð hvaðan gervigreindin fékk upplýsingarnar?

Oft, já. Perplexity sýnir heimildir við hvert svar og ChatGPT með leit birtir tilvísanir. Notaðu það: heimildirnar segja þér nákvæmlega hvaða vefir telja í þínum geira og hvar þú þarft að vera sýnilegri.

Hvað ef gervigreindin fer með rangt mál um fyrirtækið mitt?

Byrjaðu á eigin vef: réttar upplýsingar, áberandi og samhljóða á öllum síðum. Líkönin leiðrétta sig þegar trúverðugra efni verður til. Umfjöllun á öðrum vefjum flýtir fyrir.

Við skrifuðum áður um hvað AEO er og hvernig þú velur vefstofu. Viltu vita hvar þitt fyrirtæki stendur í svörum gervigreindar? Heyrðu í okkur hjá Flóru, við tökum stöðuna með þér.