

Framer
vs
WordPress
Framer vs Wordpress
Framer er eitt öflugasta og ört vaxandi no-code vefumsjónarkerfi í heimi. Framer er nútímaleg, sveigjanleg lausn í stað WordPress. Það gefur okkur fullkomið frelsi til að lífga framtíðarsýn þína við nákvæmlega eins og hún var hönnuð, án þess að rekast á veggi vegna sniðmáta og algjörlega laust við hægar uppfærslur eða úreltar viðbætur.
Af hverju að velja Framer yfir WordPress?

Ótakmarkað hönnunarfrelsi
Framer gefur okkur fullkomið frelsi til að smíða vefinn nákvæmlega að þínum þörfum. Vegna þess hve hnökralaust er að flytja hönnun úr Figma yfir í Framer, tryggjum við að endanlegur vefur verði nákvæmlega eins og samþykkt hönnun gerði ráð fyrir. Þetta umhverfi flýtir verulega fyrir allri þróun og gerir okkur kleift að skila sérsniðnum, lifandi vef á mun styttri tíma.

Samvinna og gagnsæi
Með Framer getum við boðið þér upp á algjört gagnsæi á meðan á smíði vefsins stendur. Í stað þess að bíða eftir uppfærslum á lokuðum prufuvefjum getur þú og þitt teymi fylgst með framvindunni og skoðað vefinn í rauntíma á meðan við vinnum í honum. Þetta styttir boðleiðir, gerir okkur kleift að taka við endurgjöf samstundis og útilokar óþarfa tafir í verkefninu.

Afköst og leitarvélabestun (SEO)
Framer vefir eru byggðir fyrir hámarkshraða og sýnileika á leitarvélum. Kerfið sér sjálfkrafa um flókna tæknilega þætti, eins og bestun á myndum og snjalla hleðslu. Ólíkt WordPress, þar sem reiða þarf sig á fjölda viðbóta sem hægja oft á vefnum, skila Framer vefir yfirleitt yfir 90 stigum í Lighthouse-hraðamælingum Google um leið og þeir fara í loftið.
Samanburður
Eiginleiki
Hönnunarfrelsi
Notkun
Möguleikar á kvikun
Vefumsjónarkerfi (CMS)
Leitarvélabestun
Hraði og afköst
Öryggi
Samvinna
Verðlagning
Framer
Opið vinnusvæði með fulla stjórn á hönnun
Kóðalaust umhverfi með einföldu og þægilegu viðmóti
Hreyfimyndir og virkni án forritunar
Öflugt og innbyggt vefumsjónarkerfi
Innbyggð leitarvélabestun (SEO)
Bestað fyrir hraða og lykilmælikvarða Google
Fyrsta flokks öryggi án þess að þurfa viðbætur
Rauntímavinnusvæði, svipað og í Figma
Gagnsæ verðlagning, enginn falinn kostnaður
Wordpress
Háð þemum og sniðmátum
Háð þemum og sniðmátum
Krefst viðbóta eða sérkóða
Krefst viðbóta frá þriðja aðila
Krefst viðbóta fyrir leitarvélabestun
Oft hægt í vinnslu nema ráðist sé í sérstaka hraðabestun
Viðkvæmara fyrir öryggisgöllum í viðbótum
Býður ekki upp á samvinnu í rauntíma
Getur orðið dýrt þegar viðbætur og viðhald bætast við
Hvað það þýðir fyrir þig
Hönnunin verður nákvæmlega eftir þínu höfði án málamiðlana
Settu vefinn hraðar í loftið án þess að þurfa forritara
Líflegri vefsíður án aukafyrirhafnar
Auðvelt að stjórna efninu án aukakostnaðar
Betri sýnileiki í leitarvélum með minni fyrirhöfn
Betri sýnileiki í leitarvélum með minni fyrirhöfn
Engar áhyggjur af innbrotum eða úreltum viðbótum
Teymið getur unnið saman og birt breytingar samstundis
Fyrirsjáanlegur kostnaður og engin óvænt útgjöld











